Þórdís Geirsdóttir sigraði örugglega í kvennaflokki 50 ára og eldri. Hún lék á 76-75-77 samtals 228 eða 15 höggum yfir pari og sigraði mótið með 26 höggum!
Mótið fór fram á Akureyri dagana 14.-16. júlí og var leikið af bláum teigum.
Keilir átti fjórar konur á topp 8 í mótinu.
- Þórdís Geirsdóttir 4-5. sæti Anna Snædís Sigmarsdóttir og Anna Jódís Sigurbergsdóttir og í 8. sæti varð Kristín Sigurbergsdóttir.
Í karlaflokki var Gunnar Þór Halldórsson efstur Keilismanna í 8.-9. sæti.
Í flokki kvenna 65 ára og eldri varð Sólveig B. Jónsdóttir Keili í 5. sæti. Í karlaflokki varð Tryggvi Þór Tryggvason Keili í 8. sæti.
Nánari upplýsingar um Íslandsmót eldri kylfinga er hægt að lesa inn á golf.is