Ungir og efnilegir kylfingar Keilis settu nýtt Íslandsmet í að æfa golf dagana 15.-16. mars. Um var að ræða áheitagolf þar sem fólk gat styrkt þau með upphæðum að eigin vali ef þeim tækist að setja nýtt íslandsmet.
Gamla íslandsmetið var í eigu kylfinga í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi frá árinu 2009. Yfir 40 krakkar tóku þátt og gistu og eyddu öllum stundum í Hraunkotinu eða í lengur en 25 klst.
Krakkarnir vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem að styrktu þau og studdu. Þau eru á leiðinni í æfingaferðir til Spánar fljótlega eftir páska.