Kvennastarf Keilis
Innan Keilis er öflugt kvennastarf. Kvennanefnd er skipuð sex frábærum konum sem sjá um starfið.
Það helsta í starfinu:
- Púttmótaröð í upphafi árs, 8 mót og 4 bestu hringirnir reikna til meðaltals úrslita á mótaröðinni.
- Uppskeruhóf og kynning á sumrinu að lokinni púttmótaröðinni.
- Miðvikudagsmótaröð þar sem leikið er 8 miðvikudaga yfir sumarið og 4 bestu hringirnir eru reiknaðir saman meðaltal til úrslita á mótaröðinni. Á Hvaleyrarvelli eru 3 forgjafarflokkar og einn á Sveinskotsvelli.
- Í lok september er haldið uppskeruhóf miðvikudagsmótaraðarinnar með skemmtigolfmóti á Sveinskotsvelli áður og svo kvöldverði.
- Vinkonumót með golfklúbbnum Oddi þar sem leikið er tvo daga í röð á sitt hvorum vellinum. Að loknu móti eru úrslit kynnt yfir kvöldverði.
- Opið kvennamót Keilis í fyrri hluta ágústmánaðar ásamt því að sjá um verðlaunaafhendingu yfir kvöldverði.
- Haustferð með gistingu á hóteli utan höfuðborgarsvæðisins. Þar er þátttakendum skipt í tvö lið, Evrópu og Ameríku. Að loknu móti er kvöldverður og verðlaunaafhending.
Allar nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu nefndarinnar, “Kvennastarf Keilis”.
Stjórn kvennastarfs Keilis starfa:
Rósa Lyng Svavarsdóttir, formaður
Kristín Geirsdóttir
Nína Edvardsdóttir
Rut Sigurvinsdóttir
Sigrún Einarsdóttir
Sigurlaug Jóhannsdóttir
