Golfklúbburinn Keilir (Keilir) leitar að metnaðarfullum og skipulögðum einstakling í starf íþróttastjóra. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem réttum aðila gefst kostur á að móta metnaðarfullt íþróttastarf.
Íþróttastjóri gegnir lykilhlutverki í að tryggja framgang og framþróun barna-, unglinga- og félagsstarfs í samræmi við stefnu klúbbsins. Íþróttastjóri hefur yfirumsjón með að móta faglegar áherslur og golfþjálfunar í samstarfi við þjálfara.
Leitað er að einstakling sem er með leiðtogahæfileika til að móta liðsheild hjá þjálfurum og iðkendum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á íþróttamálum Keilis ásamt öllum þjálfaramálum.
- Yfirsýn og umsjón með faglegu skipulagi þjálfunar.
- Náið samstarf með öðru starfsfólki Keilis að uppbyggingu golfíþróttarinnar
- Umsjón með samningagerð og val á birgjum og styrktaraðilum.
- Markaðssetning námskeiða og æfinga.
- Uppfærslur á heimasíðu Keilis og öðrum miðlum.
- Fjölbreytt samskipti við helstu hagaðila.
- Ábyrgð og umsjón með æfinga- og félagakerfinu Sportabler
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi og þekking á golfi.
- Ögun í vinnubrögðum.
- Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, metnaður, framsýni, sjálfstæði og leiðtogahæfni.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta og færni í ensku.
Í umsókn um starfið þarf að fylgja ferilsskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni til að gegna starfinu. Umsóknir skulu berast á netfangið olithor@keilir.is, fyrir 15. október n.k.