Mánudaginn 26. júní fór fram golfmót fyrir yngri kylfinga Keilis á Sveinskotsvelli. Mótið hófst á hádegi og léku kylfingarnir níu holur. Að mótinu loknu var keppendum boðið upp á pylsur og djús í Hraunkoti. Þáttaka í mótinu var góð og voru kylfingarnir ungu ánægðir með árangurinn. Sigurvegarar í mótinu voru þau Sólveig Arnarsdóttir í stelpuflokki og Patrekur Valgeirsson í strákaflokki. Mikil stemning er í barna og ungmennastarfi Keilis þessa dagana enda golfleikjaskóli Keilis í fullum gangi en hægt er að nálgast upplýsingar um námskeiðin hér á heimasíðu Keilis.