Í vikunni lauk eitt af skemmtilegri mótum ársins. Um er að ræða Íslandsmót liða 12 ára og yngri og sendi Keilir þrjár sveitir til leiks. Leikið er á þremur völlum og var byrjað að leika á vellinum í Bakkakoti Golfklúbbs Mosfellsbæjar, annar hringur var leikin á Mýrinni hjá GKG og þriðji og síðasti dagurinn var leikinn á Sveinskotsvelli hjá Keili. Leikið er með Texas scramble fyrirkomulagi.
Keiliskrakkarnir náðu frábærum árangri og má með sanni nefna það að framtíðin er björt hjá Keili.
Í gulu deildinna sigraði lið Keilis örugglega og í bláu deildinni varð Keilir í 2. sæti eftir spennandi leik við GKG um efsta sætið. Í hvítu deildinni varð Keilir í 5. sæti. Í því liði eru ungir og efnilegir kylfingar sem eiga eftir 2-3 ár í flokki 12 ára og yngri.
Þannig voru liðin okkar skipuð:
Gula deildin: Ebba Gurrý Ægisdóttir, Íris Birgisdóttir, Lilja Dís Hjörleifsdóttir, Elva María Jónsdóttir og Tinna Alexía Harðardóttir
Bláa deildin: Viktor Tumi Valdimarsson, Bjarki Hrafn Guðmundsson, Víkingur Óli Eyjólfsson, Magnús Víðir Jónsson, Oliver Elí Björnsson og Hrafn Guðmundsson
Hvíta deildin: Frímann Pálsson, Máni Freyr Vigfússon, Gústaf Logi Gunnarsson, Halldór Jóhannsson, Erik Valur Kjartansson, Arnar Freyr Jóhannsson.
Hér er hægt að skoða úrslit í mótinu.
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1A9Np9uGPh2S-EprTabDsIaqekLaXYCiy/edit#gid=1618343160
Myndir frá mótinu inn á myndavel GSÍ