Innheimta félagsgjalda 2025
Innheimta félagsgjalda 2025
Á aðalfundi Golfklúbbsins Keilis sem haldinn var þriðjudaginn 3. desember sl. var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2025.
Innheimta félagsgjalda fyrir árið 2025 verður eftirfarandi:
Þeir félagar sem greiða með greiðslukorti, VISA eða EURO geta dreift greiðslum í allt að 10 jafna hluta frá og með 9. desember og er 3% þóknun af þeim viðskiptum. Þeir sem skiptu um greiðslukort frá síðasta greiðslutímabili eru vinsamlega beðnir um að koma upplýsingum um breytingar á skrifstofu Keilis.
Þeir sem ekki greiða með korti munu fá senda fjóra greiðsluseðla í heimabanka með eindaga 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl og 1. maí.
Fyrsti greiðsluseðill mun berast í heimabanka í desember með eindaga 1. febrúar.
Gjald fyrir greiðsluseðil er kr. 350,00.
Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í heimabanka.
Hafi félagsmaður ekki greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 15. maí verður krafa send til frekari innheimtu og viðkomandi félagsmaður tekinn út af félagaskrá án viðvörunar 15. maí.
Eftir 1. maí verður innborgað félagsgjald ekki endurgreitt.
Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að gera það strax. Það eina sem þarf að gera til að ganga frá breytingu er að senda tölvupóst á netfangið david@keilir.is
Einnig viljum við benda á að ef félagsmaður ætli sér að hætta í Keili þá skal úrsögn berast sem allra fyrst. Úrsögn skal vera skrifleg og berast í tölvupósti á keilir@keilir.is
Ef félagsmaður ætlar sér að halda áfram í Keili þá þarf ekkert að gera.