Á aðalfundi Golfklúbbsins Keilis sem haldinn var þriðjudaginn 7. desember sl. var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2022.
Á fundinum var Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir endurkjörinn formaður klúbbsins. Með henni í stjórn eru Sveinn Sigurbergsson, Guðmundur Örn Óskarsson, Ellý Erlingsdóttir, Bjarni Þór Gunnlaugsson, Daði Janusson og Már Sveinbjörnsson.
Innheimta félagsgjalda fyrir árið 2022 verður eftirfarandi. Sendir verða út fjórir greiðsluseðlar til þeirra sem kjósa þann greiðslumáta. Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í heimabanka.
Þeir félagar sem greiða með greiðslukorti, VISA eða EURO geta dreift greiðslum í allt að 10 jafna hluta frá og með 13.desember og er 3% þóknun af þeim viðskiptum. Þeir sem skiptu um greiðslukort frá síðasta greiðslutímabili eru vinsamlega beðnir um að koma upplýsingum um breytingar á skrifstofu Keilis.
Þeir sem ekki greiða með korti munu fá senda fjóra greiðsluseðla í heimabanka með eindaga 1. febrúar,1. mars, 1. Apríl og 1. maí, gjald fyrir greiðsluseðil er kr. 350,00.
Hafi félagsmaður ekki greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 15. maí verður krafa send til frekari innheimtu og viðkomandi félagsmaður tekin út af félagaskrá án viðvörunar 15. maí. Eftir 1. maí verður innborgað félagsgjald ekki endurgreitt.
Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að gera það strax. Það eina sem þarf að gera til að ganga frá breytingu er að senda tölvupóst á netfangið david@keilir.is
Félagsgjöldin fyrir árið 2022.
Hópur 0 til 18 ára kr. 32.750 Sveinskots. 0-16 ára kr. 0
Hópur 19 til 26 ára kr. 65.500 Sveinskots. 17-26 ára kr. 31.000
Hópur 27 til 70 ára kr. 131.000 Sveinskots. 27-70 ára kr. 62.000
Hópur 71 til 74 ára kr. 98.250 Sveinskots. 71 til 74 ára kr. 46.500
Hópur 75 ára+ kr. 65.500 Sveinskots. 75 ára+ kr. 31.000
Skápaleiga fyrir árið 2022 verður kr. 17.500. Leiga fyrir stæði undir hjól og kerrur verður kr. 22.000 fyrir sama tímabil. Innheimta þessara gjalda fer fram samtímis félagsgjöldum.
Sumarleiga fyrir golfbíla verður 90.000 krónur fyrir sumarið
Allar upplýsingar um aðalfund Keilis eru á heimasíðunni https://2021.keilir.is/
Hvaleyri, desember 2021
Virðingarfyllst, Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis.