Túlkun viðbragðshóps GSÍ á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum opnun með ákveðnum takmörkunum og verða vellir og Hraunkot æfingasvæði Keilis opin frá og með laugardeginum 27. mars samkvæmt neðangreindu. Allir snertifletir í Hraunkoti hafa verið meðhöndlaðir með Nanoseptic sótthreinsivörninni. S.s hurðahúnar, boltavélar, snertiskjáir í golfhermum ofl.
Golfiðkun er áfram heimil utandyra og geta félagsmenn því leikið Sveinskotsvöll eins og verið hefur:
- Vellir eru eingöngu opnir félagsmönnum
- Skylda er að skrá sig í rástíma á Golfbox með tilliti til rakningar
- Félagsmenn skulu virða 2ja metra reglu
- Enginn sameiginlegur búnaður eða snertifletir
- Gæta skal að almennum sóttvörnum
Inniæfingaaðstaða Hraunkots verður opin frá og með laugardegi 27. mars:
- Hámarksfjöldi er 10 manns
- Grímuskylda er í húsinu
- Félagsmenn þurfa að skrá sig á blað í afgreiðslu þegar mætt er með upplýsingum um nafn og kennitölu, við brottför skal einnig skrá tíma sem varið er á æfingasvæði
- Enginn sameiginlegur búnaður verður í notkun, s.s. stangir og æfingaboltar
- Hámarksfjöldi í Hermum verða tveir kylfingar
- Aðeins einn notar tölvuna í hermi
- Gestir skulu virða 2ja metra reglu
- Gæta skal að almennum sóttvörnum
Æfingasvæði Hraunkots verður opið frá og með laugardegi 27. mars:
- Skýlinu verður skipt í tvö hólf með sérinngangi í hvert hólf
- Hámarksfjöldi í hvorru hólfi er 10 manns
- Kylfingar þurfa að skrá sig á blað við boltavél þegar mætt er með upplýsingum um nafn og kennitölu, við brottför skal einnig skrá tíma sem varið er á æfingasvæði
- Kylfingar skulu virða 2ja metra regluna
- Gætt verður að sameiginlegum snertiflötum með þar til gerðum búnaði (NanoSeptic)
- Gæta skal að almennum sóttvörnum
Páskar eru framundan og að þeim loknum styttist óðum í vorið. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að vinna saman og fara eftir þeim reglum sem settar eru ef starfsemi komandi golftímabils á að fara af stað á réttum tíma. Við biðjum ykkur öll að fara varlega, gæta vel að persónulegu hreinlæti og almennum sóttvörnum.
Golfkveðja Keilir