Héraðsdómaranámskeið GSÍ
Héraðsdómaranámskeið GSÍ
Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í febrúar mánuði eins og hefur verið gert síðustu ár.
Fyrirlestrar verða 11., 13., 17. og 19. febrúar 2025, kl. 19:30 – 22:00.
Fyrirlestrar eru sendir út á netinu og einnig teknir upp þannig að það er hægt að horfa þá aftur eða eftir hentugleika.
Við skráningu verður boðið upp á að velja hvort óskað sé eftir fræðslu á netinu eingöngu, eða hvort áhugi sé að sækja námskeiðið í sal ÍSÍ. Ef næg þátttaka fæst í sal mun það verða kynnt nánar þegar líður á skráninguna.
Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.
Ekki er skilyrði að fara í prófið þó að menn sitji námskeiðið.
Prófið er rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.
Það er ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið.
Þó er krafa að skrá sig á námskeiðið svo hægt sé að senda viðkomandi upplýsingar um námskeiðsefni og tengla á prófið.
Ætlast er til þess að þeir sem sitja héraðsdómaranámskeiðið byrji á því að undirbúa sig með því að fara í gegnum 1.stigs golfregluskóla R&A.
Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að skrá sig hér Skráning á námskeið eða senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is með (kennitölu, nafni og heiti golfklúbbs, ásamt því hvort óskað er eftir kennslu í sal.).
Við skorum á alla sem hafa áhuga á að skrá sig, dýpka sinn skilning á golfreglunum og mögulega taka þátt í dómarahlutverki í golfmótum á vegum Keilis.