Halldór Jóhannsson ungur og efnilegur kylfingur frá Keili varð Íslandsmeistari og stigameistari GSÍ um helgina.
Hann sigraði keppinauta sína örugglega í holukeppni á leið sinni að verða Íslandsmeistari í flokki 12 ára og yngri.
Mótið fór fram í Grafarholtinu.
Keilir óskar Halldóri og fjölskyldu innilega til hamingju með árangurinn.
Þess ber að geta að Keilir á hátt í 30% af öllum keppendum á stigalista GSÍ í þessum flokki og þar af eru átta kylfingar frá Keili inn á topp 21 listanum af öllum keppendum sem tóku þátt í mótunum í sumar.