Hæfileikamótun Keilis er hugsað fyrir unga og efnilega keppniskylfinga Keilis fædda 2008-2012 og eru undir ákveðnum forgjafarmörkun.
Dagskrá er vegleg og eru ansi mörg fræðandi erindi/æfingar á stefnuskránni.
Miðvikudagur 17. janúar kl. 18:00 til 20:00
Karl Ómar Karlsson íþróttastjóri Keilis
- Kynning á íþróttastarfi og þjálfurum í vetur fram að æfingaferð í byrjun apríl
- Leiðin til stærri afreka / Markmiðasetning
- Æfingabanki Keilis
- Samkomulag við afreksefni
- Einkakennsla með PGA þjálfara
Fimmtudagur 18. janúar og 25. janúar kl. 19:30 til 21:00
Bjarni Fritz B.S gráða í sálfræði
- Hvað þarf til að ná árangri?
- Styrkja sálrænan hluta íþróttafólks.
- Hópefli
Föstudagur 19. janúar kl. 15.00 í Hraunkoti
Steinar Bjé Aðalbjörnsson Eyhild, Næringafræðingur
- Næring kylfinga
- Grunnur að góðri heilsu og góðum árangri
Miðvikudagur 24. janúar kl. 19:00 til 21:00
Óli Björn Loftsson afreksstjóri GSÍ
- Kynning á landsliðsverkefnum GSÍ
- Golfæfing með Óla í Hraunkoti
Laugardagur 27. janúar kl. 10:00 til 13:00 í Hraunkoti
Baldur Gunnbjörnsson sjúkraþjálfari GSÍ og í heilsuteymi Keilis
- Líkamsgreining hvern einasta kylfing í hæfileikamótun
- Hver og einn fer í hreyfifærniverkefni til að kanna líkamstöðu og þjálfurum kynntar niðurstöður
- Að kylfingur verði laus við meiðsli
- Fyrirbyggjandi líkamsþjálfun
Miðvikudagur 31. janúar 2024
„Eitthvað óvænt“
Ekki má gleyma félagslega þættinum
Nánari upplýsingar eru inn á Sportabler.
Áfram Keilir.