Guðrún Brá Björgvinsdóttir sigraði á B59 hótel mótinu sem er á mótaröð þeirra bestu. Þetta er í annað skipti í röð sem Guðrún Brá sigrar á GSÍ mótaröðinni. Mótið fór fram á Garðavelli á Akranesi og voru leiknar 54 holur.
Guðrún Brá lék á 70-67 og 69 höggum eða tíu höggum undir pari og sigraði með fjórum höggum. Í öðru sæti varð Ragnhildur Kristinsdóttir GR á – 6 höggum og í þriðja sæti varð Andrea Ýr Ásmundsdóttir á +1 höggi yfir pari.
Í karlaflokki sigraði Aron Snær Júlíusson GKG á sjö höggum undir pari. Bestur Keilismanna var Birgir Björn Magnússon á þremur höggum yfir pari.