Verður haldin á Hvaleyrinni laugardaginn 4. september.
Þetta mót er ein helsta fjáröflun klúbbsins ár hvert og við sækjum eftir styrk ykkar. Keilir útvegar fulltrúa ef þarf.
Mótið á sér langa sögu og er ein helsta fjáröflunarleið okkar. Nú leitum við eftir stuðningi ykkar og þátttöku í mótinu en fyrirkomulag þess er þannig að tveir spila saman (Betri bolti) í nafni hvers fyrirtækis og getur Keilir útvegað þátttökufyrirtækjum mannskap ef þörf krefur.
Mótið er sérstaklega veglegt einsog vanalega og haldið til að standa straum af kostnaði við viðamiklar framkvæmdir á vegum Keilis síðustu ár þar sem unnið var að því að stækka og betrumbæta golfvöllinn.
Mótsgjald er 55.000 krónur.
Innifalið í því er grillveisla og drykkur að móti loknu.
Skráning fer fram á netfanginu budin@keilir.is
Með von um jákvæð viðbrögð,
Ólafur Þór Ágústsson
Framkvæmdastjóri Keilis