Hin árlega Bændaglíma fer fram laugardaginn 5. október
Mótið hefur fest sig í sessi sem ákveðið slútt í mótahaldi og því tilvalið að taka þátt og hafa gaman.
Spáin er flott fyrir daginn og vonum við að sjá sem allra flesta
- Keppnisfyrirkomulag: 2 manna Texas Scramble
- Bændurnir þetta árið verða þeir Hlynur Halldórsson og Sigurgeir Hlíðar Sigurjónsson
- Ræst verður út af öllum teigum klukkan 14:00
- Boðið verður upp á Irish Coffee í ræsisskúrnum og veitingavagninn verður á ferðinni
Að móti loknu verða bornar fram veitingar að hætti Hrefnu og að honum loknum er verðlaunaafhending.
Íslenski Elvis mætir á svæðið og heldur uppi stuðinu um kvöldið. Allir keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og skrá sig tímanlega
- Þáttökugjaldið er 7.000kr á manninn
- 20 ára aldurstakmark er í mótið
- Forgjöf liðs er samanlögð leikforgjöf leikmanna deilt með 3. Forgjöf liðs er þó aldrei hærri en leikforgjöf forgjafarlægri leikmannsins