Búið er að opna fyrir greiðslu á félags- og æfingagjöldum fyrir börn og ungmenni fæddum árið 2004 og yngri inn á SPORTABLER
Golftímabilið er frá 9. janúar – 17. desember 2023.
Æfinga- og félagsgjaldið er 75.000kr.- yfir árið eða 6.250 kr. pr. mánuð.
Hér er hægt að fara inn á Sportabler.
Hægt er að nota frístundastyrkinn sem er 4.500 kr. pr. mánuð hluta af greiðslu við æfingagjöldin.
Einnig er hægt að nota frístundabílinn fyrir krakka í 1.-4. bekk til að keyra sér á golfæfingar.
Innifalið í félagsgjaldi Keilis er:
Félagsaðild að Golfklúbbnum Keili.
Þátttaka í æfingahópi í íþróttastarfi barna og ungmenna.
Aðgangur að Sveinskotsvelli og Hvaleyrarvelli* (*53 í forgjöf)
Aðgangur að Golfbox appinu hjá GSÍ
Öll upplýsingagjöf fer fram í gegnum Sportabler app eða Keilir.is
Nánari upplýsingar er að finna hér
Eindagi á greiðslum á félags- og æfingagjöldum er 15. febrúar 2023 og er hægt að skipta greiðslunni niður í fjóra hluta ef það hentar betur.
Mikilvægt er að hafa samband við íþróttastjóra Keilis (Kalli@keilir.is)ef æfingatímar henta alls ekki. Það er ávallt hægt að finna lausn á þeim málum sem vonandi leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkanda.