Lið Keilis í silfursætum.

2020-07-25T18:03:13+00:0025.07.2020|

Íslandsmót liða í 1. deild lauk í dag. Keppnin hófst á fimmtudag og var leikið á golfvelli GKG og GO. Keilisliðin í kvenna- og karlaflokkum komust alla leið í úrslitaleikina. Karlarnir léku við GKG og fóru leikar þannig að þeir síðarnefndu urðu Íslandsmeistarar eftir 3,5-1,5 sigur. Hjá konunum var úrslitaleikur við GR. GR konur sigruðu Keilir [...]

Lið Keilis í 1. deild

2020-07-20T21:34:15+00:0020.07.2020|

Dagana 23.-25. júlí fer fram Íslandsmót golfklúbba í 1. deild. Leikið verður á Leirdalsvelli GKG og Urriðavelli GO. Liðsskipan Keilis er eftirfarandi: Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Helga Kristín Einarsdóttir, Hafdís Alda Jóhannsdóttir, Sigurlaug Rún Jónsdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir, Þórdís Geirsdóttir, Signý Arnórsdóttir og Inga Lilja Hilmarsdóttir. og Axel Bóasson, Rúnar Arnórsson, Vikar Jónasson, Helgi Snær Björgvinsson, Bjarni [...]

Þórdís með enn einn Íslandsmeistaratitilinn

2020-07-19T17:58:15+00:0019.07.2020|

Þórdís Geirsdóttir varð Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri á Íslandsmóti eldri kylfinga sem lauk í gær. Leikið var á Hamarsvelli hjá Golfklúbbi Borgarness. Leiknar voru 54 holur á þremur keppnisdögum. Þórdís lék hringina þrjá á samtals 26 yfir pari eða á 78-79 og 82. Hún sigraði Maríu Guðnadóttur frá GKG í umspili og bráðabana. [...]

Axel fagnaði sigri á Akureyri

2020-06-21T18:58:23+00:0021.06.2020|

Axel Bóasson sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni sem lauk í dag á Jaðarsvelli hjá Golfklúbbi Akureyrar. Úrslitaleikur karla var á milli Axels og Hákons Arnar Magnússonar frá Golfklúbbi Reykjavíkur. Þeir skiptust á að hafa forystu og var mikil spenna allt fram á síðustu holu er Axel sigraði 1-0. Axel var að sigra holukeppnina í annað sinn [...]

Go to Top