29/01/2025

Bætt aðstaða í Hraunkoti

Bætt aðstaða í Hraunkoti

Æfingar, frammistaða og upplifanir

Í íþróttum, hvort sem þú ert að spila eða fylgjast með sem áhorfandi er líklegt að góð eða bætt frammistaða geri upplifunina ánægjulegri. Í golfi eru afrek sem auka ánægju kylfinga eins og að fara holu í höggi, spila á lægsta hringnum sínum eða lækka sig í forgjöf, en sjaldan koma þessi afrek af sjálfu sér. Hagnýtar upplýsingar frá sérfræðingum, bætt hugarfar, heppni eða óæskileg lyfjanotkun getur orðið til þess að kylfingur nái nýjum hæðum í frammistöðu en ekkert tryggir þær jafn hratt og örugglega en að spila mikið og æfa vel.

Í Hraunkoti er allt til alls fyrir meðlimi Keilis til að spila mikið og æfa vel. Í Hvalalauginni eru tvær innanhús flatir sem bjóða kylfingum að æfa pútt og vipp, í sléttu eða halla í 340 fermetra rými. Þar eru einnig staðsettir hinir sívinsælu golfhermar sem hafa gert kylfingum og spilahópum kleift að halda áfram sínum vikulegu hefðum þrátt fyrir lokun golfvalla yfir vetrartímann. Golfhermarnir okkar eru af bestu gerð, með nýjustu uppfærslum og hafa gert æfingar og spil innanhúss raunverulegri og einfaldari í notkun en nokkru sinni fyrr.

 

Þá hafa útiæfingaskýli Hraunkots tekið miklum breytingum og bætingum undanfarið ár. Nýja skýlið hefur verið breytt í upphitað æfingaskýli með Trackman greiningartækum í öllum básum. Í tækjunum er hægt að núllstilla veðuraðstæður, sjá og vista helstu upplýsingar um hvert slegið högg, spila fjölda golfvalla og fara í allskyns leiki og keppnir sem gera æfingar í skýlinu markvissari og skemmtilegri en nokkurn tímann áður. Í nýjustu uppfærslu þessara tækja geta kylfingar keppt í golfherma mótum,  alþjóðlegum eða innanklúbbs, á Hvaleyrarvelli, eða einhverjum öðrum af bestu golfvöllum heims án þess að þurfa að yfirgefa básinn sinn.

Auk greiningartækjanna hafa hitalampar verið settir upp um allt skýlið og básar 13-21 eru komnir í gagnið (enn á eftir að tengja lampana í básum 3-12). Hitalamparnir hafa stóraukið þægindi þeirra sem kjósa að æfa utandyra og þar sem áður þurfti innanundirboli, flíspeysur og föðurland til að þrauka stutta æfingu geta kylfingar nú stundað vetraræfingar léttklæddari en þeir spiluðu golfhringi sína síðastliðið sumar. Hitalamparnir og greiningartækin eru í öllum básum nýja skýlisins og eru gjaldlausir öllum kylfingum. Þeir sem kjósa ekki að njóta þessarar tæknivæðingar hafa þann kost að kveikja ekki á þeim, æft sig í gamla skýlinu þar sem eru glæ nýjar mottur og engar græjur, og þeir allra hörðustu geta spilað á opnum Sveinkotsvelli allt árið um kring.

Við erum svo sannarlega heppin að eiga aðstöðu þar sem allir geta allir fundið sína uppáhalds leið til að stunda þessa mögnuðu íþrótt. Æfðu stutta spilið eða langa spilið, inni eða úti, innan vinahópsins eða einn, með eða án golfkennara, sem byrjandi eða lengra kominn, allt er þetta hægt í Hraunkoti.

Hvort sem þú ætlar að sjá til þess að upplifunin á golfsumrinu 2025 verði ánægjuleg með mörg tilefni til fagna öllum afrekunum eða þú vilt einfaldlega njóta þess að iðka golf í frábærri aðstöðu vil ég fyrir hönd Golfklúbbsins Keilis bjóða þér innilega velkomin að æfa golf í Hraunkoti.

Kærar kveðjur,

Birgir Björn Magnússon
Íþróttastjóri Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 30/01/2025
    Héraðsdómaranámskeið GSÍ
  • 16/01/2025
    Stjórn Keilis samþykkir reglur vegna biðlista​
  • 13/01/2025
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
  • 23/12/2024
    Jólakveðja frá Keili
  • 12/12/2024
    Gjafabréf í jólapakkann
  • 09/12/2024
    Innheimta félagsgjalda 2025