Hraunkot opnar og Sveinskotsvöllur áfram opinn
Túlkun viðbragðshóps GSÍ á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum opnun með ákveðnum takmörkunum og verða vellir og Hraunkot æfingasvæði Keilis opin frá og með laugardeginum 27. mars samkvæmt neðangreindu. Allir snertifletir í Hraunkoti hafa verið meðhöndlaðir með Nanoseptic sótthreinsivörninni. S.s hurðahúnar, boltavélar, snertiskjáir í golfhermum ofl. Golfiðkun er áfram heimil utandyra og geta [...]