Mikil spenna í Hvaleyrarbikarnum
Mikil spenna er hlaupin í baráttuna um Hvaleyrarbikarinn í golfi í kvennaflokki fyrir lokadaginn á morgun. Gamall refur jók forystuna í karlaflokki. Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur saxaði á forskot Huldu Clöru Gestsdóttur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á öðrum keppnisdegi í dag. Perla lék Hvaleyrarvöll í Hafnarfirði á 72 höggum í rigningunni í dag [...]