Hvaleyrarbikarinn hófst í morgun
Keppni um Hvaleyrarbikarinn í golfi hófst hjá Golfklúbbnum Keili á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í morgunsárið. Mótið er hið næstsíðasta á stigamótaröð GSÍ á þessu ári og eykst því spennan í keppninni um stigameistaratitlana. Kylfingarnir leika 54 holur í dag, á morgun og sunnudag eða 18 holur á dag. Hvaleyrarbikarinn er orðinn fastur liður í tilverunni hjá íslenskum [...]