Afreksstarf
Hjá Golfklúbbnum Keili er afreksstarf er nefnist Team Keilir, hugmyndafræði varðandi alla afreksstarfsemi hjá Golfklúbbnum Keili
Þjálfari: Karl Ómar Karlsson íþróttastjóri Keilis SPGA golfkennari
Þrekþjálfari: Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Svanberg Addi Stefánsson
Sjúkraþjálfari: Baldur Gunnbjörnsson
Íþróttasálfræðingur: Hrönn Árnadóttir
SAMVINNA – TRAUST – SKIPULAG – EFTIRFYLGNI
Uppbygging afreksþjálfunar á að vera gagnrýnið, uppbyggilegt og umfram allt gagnlegt fyrir alla aðila sem að afreksstarfinu koma.
UNDIRSTÖÐUÞÆTTIR
„Golf er framkvæmd undirstöðuatriða“
- Geta er framkvæmd undirstöðuþátta leiksins í tengslum við líkamlega-, sálfræðilega- og félagslega þætti.
LEIKFRÆÐILEGIR ÞÆTTIR
„Það eru undirstöðuatriðin sem skila árangri”
- Leikfræðilegur árangur ræðst af leikskilningi kylfingsins og færni hans í undirstöðuþáttum leiksins.
LÍKAMLEGIR ÞÆTTIR
„Líkaminn er verkfæri íþróttamannsins”
- Enginn kylfingur með metnað, ætti að vanmeta það að vera í góðu formi.
- Allir ættu að sjá það í hendi sér hve mikilvægir þessir þættir eru fyrir afrekskylfinginn eða hinn almenna kylfing.
SÁLFRÆÐILEGIR ÞÆTTIR
„Eftir höfðinu stjórnast útlimirnir”
- Áhugi – metnaður og vinnusemi er forsenda að getu og betri árangri
FÉLAGSLEGIR ÞÆTTIR
„Virðing – kurteisi – gaman”
- Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
- Mikilvægt er að geta sett sig í spor annarra.
- Hafðu áhrif á aðra og umhverfi þitt.
Val á kvenna- og karlasveit Keilis
Meðaltal skor frá sex bestu golfhringum gilda á mótaröð þeirra bestu
Íslandsmót golfklúbba 1. deild karla og kvenna verður haldið XXXXXXXXX
Fjórir kylfingar geta leika sig inn í liðin með því að vera með lægsta meðalskorið frá sex bestu golfhringjunum.
Íþróttastjóri ásamt þjálfurum Keilis velur fjóra kylfinga til viðbótar.
Þjálfarar áskilja sér rétt til breytinga á viðmiðunarreglunum sérstaklega ef nægur fjöldi kylfinga nær ekki að taka þátt í viðmiðunarmótunum.
Fjöldi kylfinga í hverri sveit eru átta kylfingar.
#Ef kylfingar eru jafnir um að leika sig inn í liðið verður síðasta mótið fyrir liðakeppnina til viðmiðunar.
Liðin verða tilkynnt fljótlega eftir meistaramót Keilis.