Aðalfundur Golfklúbbsins Keilis 2024 verður haldinn þriðjudaginn 3. desember n.k. í Golfskála Keilis
Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 19:30
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
- Lagabreytingar (sjá neðar í frétt)
- Stjórnarkosning
- Kosning endurskoðanda
- Kosning fulltrúa og varafulltrúa, sem Keilir er aðili að
- Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2025
- Önnur mál
Tillaga að lagabreytingu, smellið á hlekkinn til að skoða
Samkvæmt 8. grein laga Keilis þá skal sjórn kjörin á Aðalfundi.
Stjórn Keilis skipa sjö félagsmenn. Stjórnin skal kosin á aðalfundi. Formann stjórnar skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára, þrír hvert ár. Framboð til stjórnar skulu berast skrifstofu Keilis eigi síðar en viku fyrir aðalfund.