Hraunkot

Í Hraunkoti er glæsileg heilsárs æfingaaðstaða. Hægt er að slá bolta utandyra allt árið um kring úr básum sem allir hafa TrackMan golfherma-kerfi, inn á upplýst æfingasvæði. Stórt svæði er tileinkað stutta spilinu utandyra en einnig er hægt að æfa pútt og styttri vipp innandyra.

Nú er Hraunkot orðið mannlaust og verður einungis hægt að versla bolta beint úr boltavélunum með GolfMore appinu eða greiðslukorti. Æfingaskýlin eru opin alla daga allan sólarhringinn, kveikt er á flóðsljósunum til klukkan 23:00 alla daga vikunnar.

Er bókað í Inniaðstöðunni

Hér getur þú séð bókanir fyrir golfhermana og inniaðstöðuna í Hraunkoti