Þar sem að dagarnir styttast nú óðum ætlum við að breyta skráningarfyrirkomulagi okkar á rástímum frá og með mánudeginum 16. september til þess að koma til móts við okkar félaga þannig að sem flestir komast í golf.

Hægt verður að bóka sig á 9 holur og þá bæði á 1. og 10. teig.

Rástímaskráning mun líta þá svona út:

Keilir Haust – Hraunið (fyrri 9) 06:30 – 21:50. Þeir kylfingar sem bóka sig á þessum tíma og vilja spila 18 holur þurfa þá að bóka sig á rástíma á 10. teig.

Keilir Haust – Hvaleyrin (seinni 9) 06:30 – 21:50.

Búið er að opna á allt haustið þannig kylfingar geta bókað sig þegar þeim lystir. Við höldum okkur þó við 4 hámarksbókanir í einu (4 á Hrauninu og 4 á Hvaleyrinni).

Er það okkar von að þetta verði til þess að enn fleiri Keilisfélagar geti notið þess að spila golf á Hvaleyrarvelli þegar tekur að hausta.