Keilir karlar í liði 65 ára og eldri urðu Íslandsmeistarar í dag þegar þeir unnu GKG í úrslitaleik 3,5 – 1,5.
Leikið var á Öndverðarnesinu og tóku átta lið þátt.
Lið Keilis var þannig skipað: Tryggvi Þór Tryggvason, Sigurður Aðalsteinsson, Kristján V. Kristjánsson, Kristinn Þórir Kristjánsson, Jóhannes Pálmi Hinriksson, Páll Ingólfsson og Hafþór Kristjánsson sem var spilandi liðsstjóri.
Keilir konur léku á Vogum í Vatnsleysuströnd og enduðu í 6. sæti.
Liðið var þannig skipað: Kristjana Aradóttir, Ingveldur Ingvarsdóttir, Christel Johansen, Sólveig Björk Halldórsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Hjördís Ingvadóttir sem var liðstjóri.