Hjálpumst að við að gera golfvellina okkar snyrtilegri!
Keilir ætlar að fara að fordæmi nágranna golfklúbba og kynna til leiks og láta reyna á verkefnið “Braut í fóstur”
Þetta er svo sem ekki flókið verkefni, við förum þess á leit við félagsmenn að þeir taki brautir í fóstur og hjálpi okkur við að halda þeim í sem bestu ásigkomulagi hverju sinni.
Það er ekkert launungamál að boltaför, torfusneplar og smárusl eiga það til að sleppa framhjá starfsfólki og gestum golfvallanna. Upphafsstafur í fornafni þínu segir til um hvaða braut við biðjum þig að taka í fóstur, sjá töflu hér að neðan. Viðkomandi braut sinnir þú umfram venjubundna góða umgengni á öðrum brautum. Vinsamlegast hefðu eftirfarandi í huga á þinni braut:
- Leita að boltaförum og gera við þau
- Hafa augun opin gagnvart torfusneplum sem þarf að leggja aftur í farið sitt
- Týna upp lauslegt rusl og koma því í næstu rusl flokkunarstöð
- Henda brotnum tíum á teig í tíkassana
- Hafa eftirlit með þeim glompum sem eru á brautinni, eru þær eins og þú vilt koma að þeim?
Við ætlum að styðjast við stafrófið til að ákveða hvaða braut verður þín . Upphafstafurinn í nafni þínu ákvarðar hvaða braut þú sinnir sérstaklega ef þér hugnast að taka þátt í þessu verkefni með okkur.
Vonandi verða viðtökurnar góðar og vellirnir okkar snyrtilegri og betri að spila fyrir vikið.
Með fyrirfram þökk og kærri kveðju,
Starfsfólk og stjórn Keilis