Íslandsmótið í golfi var haldið á Grafarholtsvelli í ár. Mótið fór fram dagana 8-11 ágúst. Alls tóku 19 kylfingar frá Keili þátt í mótinu.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir fagnaði sigri í kvennaflokki og náði því að verja titilinn. Hún lék á 281 höggi eða á 3 undir pari.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, fagnaði sigri í karlaflokki og Rúnar Arnósson, Keili, varð í 2.-4. sæti.
Keilir óskar Guðrúnu Brá innilega til hamingju með frábæran árangur.