Kvennastarf Keilis
Innan Keilis er öflugt kvennastarf og eru allar konur innan Keilis velkomnar að taka þátt í starfinu.
Það helsta sem við gerum yfir árið:
- Púttmótaröð í upphafi árs, 8 mót og 4 bestu hringirnir reikna til meðaltals úrslita á mótaröðinni.
- Uppskeruhóf púttmótaraðarinnar og kynning á sumrinu saman yfir kvöldverði.
- Miðvikudagsmótaröð þar sem leikið er 10 miðvikudaga yfir sumarið og meðaltal 4 bestu hringjanna er reiknað saman til úrslita á mótaröðinni. Á Hvaleyrarvelli eru 3 forgjafarflokkar og einn á Sveinskotsvelli.
- Í lok september er haldið uppskeruhóf miðvikudagsmótaraðarinnar með kvöldverði og jafnvel skemmtigolfi áður ef veður leyfir.
- Vinkonumót við GR sem leikið er tvo daga á sitt hvorum vellinum. Að loknu móti eru úrslit kynnt yfir kvöldverði.
- Opið kvennamót Keilis um miðjan ágúst ásamt því að sjá um verðlaunaafhendingu yfir kvöldverði.
- Haustferð með gistingu á hótel Hamri í Borgarnesi. Þar verður “Ryder keppni” á Hamarsvelli ásamt einstaklings punktakeppni. Að loknu móti er kvöldverður og verðlaunaafhending.
Allar nánari upplýsingar má finna á Facebooksíðu nefndarinnar, “Kvennastarf Keilis” eða á netfanginu kvennastarf@keilir.is.
Stjórn kvennastarfs Keilis starfa:
Rósa Lyng Svavarsdóttir, formaður
Kristín Geirsdóttir
Nína Edvardsdóttir
Rut Sigurvinsdóttir
Sigrún Einarsdóttir
Sigurlaug Jóhannsdóttir