Innheimta félagsgjalda fyrir árið 2015. Í ár verða sendir út þrír greiðsluseðlar til þeirra sem kjósa þann greiðslumáta. Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í heimabanka.

Þeir félagar sem greiða með greiðslukorti, VISA, EURO eða Amex geta dreift greiðslum í 10 jafna hluta frá og með 1.janúar og er 3% þóknun af þeim viðskiptum en 5% af American Express kortum. Þeir sem skiptu um greiðslukort frá síðasta greiðslutímabili eru vinsamlega beðnir um að koma upplýsingum um breytingar á skrifstofu Keilis.

Þeir sem ekki greiða með korti munu fá senda þrjá greiðsluseðla í heimabanka með eindaga 2. febrúar,1. mars og 1. apríl, gjald fyrir greiðsluseðil er kr. 350,00.

Athugið að til þess að losna við greiðsluseðlagjaldið þarf að gera það í heimabanka viðkomandi með því að fara í flipann aftan við kröfuna og velja um að setja kröfuna í beingreiðslu.

Henti greiðslufyrirkomulag okkar ekki, bendum viðkomandi á að semja við þjónustufulltrúa sinn um aðra greiðsludreifingu. Í þeim tilfellum greiðir viðskiptabankinn félagsgjaldið til okkar í eingreiðslu inn á reikning Keilis í banka 140-26-5581 kennitala 680169-6919. Hafi félagsmaður verið í greiðsluþjónustu banka til þessa, verður sá hina sami að hafa samband við þjónustufulltrúa sinn og láta vita að Landsbankinn annist nú innheimtu félagsgjalda Keilis.

Þeir sem ekki hafa greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 15. apríl verða teknir út af félagaskrá án viðvörunar og aðrir teknir inn í þeirra stað. Eftir 15. apríl verður innborgað félagsgjald ekki endurgreitt.

Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að gera það strax. Það eina sem þarf að gera til að ganga frá breytingu er að senda tölvupóst á netfangið pga@keilir.is

 

Félagsgjöldin fyrir árið 2015.

Félagsmenn 21 til 66 ára        kr. 88.500         Öldungar 67 ára+                         kr. 65.500
Unglingar 13 til 20 ára            kr. 40.000         Unglingar 12 ára og yngri           kr. 33.500
Sveinskotsvöllur                       kr. 50.000         Unglingar sveinskot 0-16 ára     kr. 0 Sveinskotsvöllur, 67+              kr. 35,000

Skápaleiga fyrir árið 2015 verður kr. 7000. Leiga fyrir stæði undir hjól og kerrur verður kr. 10.000 fyrir sama tímabil. Innheimta þessara gjalda fer fram samtímis félagsgjöldum.

Hvaleyri, janúar 2015
Virðingarfyllst,
Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis.