Klárum árið saman á púttmóti í Hraunkoti

Glæsilegt gamlárspúttmót verður haldið á morgun gamlársdag í Hraunkoti. Fyrirkomulagið er einfalt tveir hringir spilaðir og betri gildir. Mótið byrjar kl 11:00 og stendur til 16:00, verðinu er að sjálfsögðu stillt í hóf aðeins 500 krónur. Eftir mótið verður hægt að staldra við uppí golfskála og gæða sér á einum köldum og fara yfir golfárið í góðravinahóp.

Endilega notum tækifærið Keilismenn og bjóðum félögum okkar úr öðrum klúbbum og kynnum okkar glæsilegu aðstöðu í Hraunkoti.

Kveðja,
Starfsfólk Hraunkots

 
Advertisement
Advertisement
Advertisement

Póstlisti